Jæja nú er árið 2008 gengið í garð, hvernig höfðu þið það um áramótin? eitthvað skemmtilegt? ég var nú bara heima í rólegheitunum og skaut ekki einu sinni upp flugeldum, við fjölskyldan fórum bara yfir borgarfjarðarbrúnna og horfðum á flugeldana hjá öllum hinum..
hehe, sniðug við.
En það sem gerðist árið 2007 var í stuttu máli þetta:
Ég vil bara segja gleðilegt ár og takk fyrir það gamla

En yfir í annað, ég fékk að vita það í dag að ég er með slitið krossband og mjög ólíklega en kannski líka með slitinn liðþófa í hnénu, já takk fyrir það, eins og ég hafi ekki verið nógu mikið frá keppni...
og ofan á þetta fékk ég síðan blóðtappa i hægri kálfan, örugglega út af því að ég gat ekki stigið í löppina og v arla hreyft hana í viku
Svo ég þarf að vera á blóðþynningalyfjum í 3. mánuði og þá fyrst er hægt að gera aðgerð og laga þetta blessaða hné, en það er bið eftir aðgerð og blóðþynningar tímabilið gæti lengst eitthvað og eftir aðgerð þarf ég að hvíla í 3-6 mánuði

sem þýðir að í LANG besta falli get ég farið að spila aftur í SEPTEMBER
, og kannski ekki fyrr en rétt fyrir næstu jól
ég vona að þetta fari allt á besta veg því að ég er enganveginn að fara að meika að vara frá í HEILT ÁR,
það gerir það líka ennþá verra að ég má gera allt nema spila körfu, ég má skokka, synda, fara í fjallgöngu, lyfta, skjóta á körfu, en ég má ekki spila eða vera að æfa...
En það er allavega leikur hjá stelpunum á norgunn, í smáranum á móti breiðablik, ég er bara driver, og verð víst að sætta mig bara við það

Svo byrjar bara skólinn á mánudaginn og ég hlakka mega til, þetta verður ekkert nema skemmtileg önn
En þar til síðar, hafið það gott ástirnar mínar og endilega kommentið hjá mér eða skrifið í gestabókina
, alveg sama þó að ég þekki ykkur ekkert

Þar til síðar
-Hugrún-